Isaiah 6

1Árið sem Ússía konungur andaðist sá ég Drottin sitjandi á háum og gnæfandi veldistóli, og slóði skikkju hans fyllti helgidóminn. 2Umhverfis hann stóðu serafar. Hafði hver þeirra sex vængi. Með tveimur huldu þeir ásjónur sínar, með tveimur huldu þeir fætur sína og með tveimur flugu þeir. 3Og þeir kölluðu hver til annars og sögðu: ,,Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.`` 4Við raust þeirra, er þeir kölluðu, skulfu undirstöður þröskuldanna og húsið varð fullt af reyk. 5Þá sagði ég: ,,Vei mér, það er úti um mig! Því að ég er maður, sem hefi óhreinar varir og bý meðal fólks, sem hefir óhreinar varir, því að augu mín hafa séð konunginn, Drottin allsherjar.`` 6Einn serafanna flaug þá til mín. Hann hélt á glóandi koli, sem hann hafði tekið af altarinu með töng, 7og hann snart munn minn með kolinu og sagði: ,,Sjá, þetta hefir snortið varir þínar. Misgjörð þín er burt tekin og friðþægt er fyrir synd þína.`` 8Þá heyrði ég raust Drottins. Hann sagði: ,,Hvern skal ég senda? Hver vill vera erindreki vor?`` Og ég sagði: ,,Hér er ég, send þú mig!`` 9Og hann sagði: ,,Far og seg þessu fólki: Hlýðið grandgæfilega til, þér skuluð þó ekkert skilja, horfið á vandlega, þér skuluð þó einskis vísir verða! 10Gjör þú hjarta þessa fólks tilfinningarlaust og eyru þess daufheyrð og afturloka augum þess, svo að þeir sjái ekki með augum sínum, heyri ekki með eyrum sínum og skilji ekki með hjarta sínu, að þeir mættu snúa sér og læknast.`` 11Og ég sagði: ,,Hversu lengi, Drottinn?`` Hann svaraði: ,,Þar til er borgirnar standa í eyði óbyggðar og húsin mannlaus og landið verður gjöreytt.`` 12Drottinn mun reka fólkið langt í burt og eyðistaðirnir verða margir í landinu. 13Og þótt enn sé tíundi hluti eftir í því, skal hann og verða eyddur. En eins og rótarstúfur verður eftir af terpentíntrénu og eikinni, þá er þau eru felld, svo skal og stúfur þess verða heilagt sæði.
Copyright information for Icelandic